Flugfélagið Ernir leggur niður áætlunarflug sitt til og frá Vestmannaeyjum á föstudaginn. Þetta var tilkynnt í gær og hafði Mbl.is það eftir Herði Guðmundssyni, framkvæmdastjóra Ernis, að flug á þessari leið beri sig ekki og sé því sjálfhætt.
Ernir tók við flugi til Eyja í ágústbyrjun 2010 en Landeyjahöfn, þangað sem Herjólfur siglir, var tekin í notkun mánuðinum á undan.
Farþegatölur Isavia sýna að síðan þá hefur þeim fækkað ört sem fljúga til og frá Vestmannaeyjum. Árið 2010 fóru rúmlega tuttugu og sex þúsund farþegar um flugstöðina í Eyjum en í fyrra voru þeir tæplega 12 þúsund eða rétt 32 á dag að jafnaði.
Gera má ráð fyrir að fjöldinn sé ennþá minni í dag vegna Covid-19. Í júlí fækkaði farþegum á innanlandsflugvöllunum til að mynda um 41 prósent.