Þrjú af hverjum fjórum fyrirtækjum telja sig komast í gegnum Covid-19

Það eru óvissutímar en engu að síður hugur í ferðaþjónustunni fyrir norðan.

Rétt um helmingur fyrirtækja sem eru með ferðir og afþreyingu fyrir ferðamenn á Norðurlandi nýta sér úrræði stjórnvalda vegna Covid-19 kreppunnar. Mynd: Markaðsstofa Norðurlands

Forsvarsmenn 76 prósent ferðaþjónustufyrirtækja á Norðurlandi telja að fyrirtæki þeirra muni komast í gegnum þá erfiðleika sem Covid-19 faraldurinn hefur orsakað. Þetta kemur fram í nýrri könnun sem Markaðsstofa Norðurlands stóð fyrir í ágúst og bárust svör frá 158 fyrirtækjum. Könnunin er svipuð þeirri sem var gerð á vormánuðum.

Frá fyrri könnun hefur þeim reyndar fjölgað sem eru óvissir um hvort fyrirtækið þeirra verði opið næstu tólf mánuði. Það hlutfall fór úr átta í átján prósent nú í sumarlok.

Þó hefur orðið sú breyting að helmingi fleiri nýta núna hlutabótaleið stjórnvalda. Engu að síður notar tæplega helmingur fyrirtæki ekki úrræði stjórnvalda og ástæðan er þó oftast sú að þessar leiðir henti ekki.

„Niðurstöðurnar eru jákvæðar eins og í vor og ánægjulegt að sjá bjartsýnina sem er ríkjandi. Það er þó umhugsunarefni sem þarf að skoða nánar hversu stór hluti getur ekki nýtt sér úrræði stjórnvalda og má velta því fyrir sér hvort það er smæð fyrirtækja, árstíðarsveiflan eða aðrar ástæður fyrir því,“ segir Arnheiður Jóhannsdóttir, framkvæmdastjóri Markaðsstofu Norðurlands, í tilkynningu.