Þegar kröfuhafar Norwegian eignuðust meirihluta í flugfélaginu í vor þá skuldbundu þeir sig til að halda í hlutabréfin í ákveðinn tíma. Í dag losnaði um hluta af bréfunum eða samtals 900 milljón hluti. Það jafngildir um einum sjötta af öllum útgefnum hlutum í flugfélaginu.