Samfélagsmiðlar

Telur að fargjöldin verði áfram undir pressu

Forstjóri SAS gerir ráð fyrir að framboð á flugi verði meira en eftirspurnin þegar hjólin fara að snúast á ný. Framtíðarsýn Icelandair er önnur.

Rickard Gustafsson, forstjóri SAS.

„Ég tel að samkeppnin verði áfram mikil. Flugfélög hafa tæmt sjóði sína en búa yfir mikilli afkastagetu, fjölda flugvéla, og það kostar sitt. Þoturnar þurfa að komast á loft og skapa tekjur. Þar með verður framboðið meira en eftirspurnin og það setur pressu á fargjöldin.“

Þetta segir Rickard Gustafsson, forstjóri SAS, í viðtali við Dagens Industri, þar sem hann er spurður hvort farþegar megi búast við hærri fargjöldum, færri brottförum og minna úrvali af áfangastöðum. Forstjórinn segist hins vegar ekki gera ráð fyrir að staða neytenda breytist mikið eftir að heimsfaraldrinum lýkur.

Hjá Icelandair er gert ráð fyrir hærri einingatekjum

Í áætlunum Icelandair, sem birtar voru í tengslum við nýlegt hlutafjárútboð félagsins, er hins vegar gert ráð fyrir að einingatekjur hækki næstu ár. Og þá þurfa fargjöldin að fara upp á við. Staðreyndin er hins vegar sú að einingatekjur Icelandair hafa farið lækkandi síðustu ár eins og Túristi hefur rakið.

Spá Icelandair um hækkun einingatekna byggir á betra skipulagi á leiðakerfi félagsins og bættri tekjustýringu líkt og Bogi Nils Bogason, forstjóri félagsins, fór yfir hér á síðunni í sumarlok.

Stóra spurningin: Minni eða meiri samkeppni á Norður-Atlantshafi?

Hjá Icelandair horfa þau líka til þess að samkeppni í flugi yfir Norður-Atlantshafið minnki og það hafi líka jákvæð áhrif á einingatekjurnar eða RASK eins og talað er um í fluggeiranum.

„Við teljum líklegt að flest flugfélög muni einbeita sér að því að styrkja „hub starfsemi” sína næstu árin. Þetta mun valda færri beinum flugum á N-Atlantshafsmarkaðnum sem mun gera „1-stop” vöru okkar, í gegnum Ísland, mjög álitlega og þar með hækka RASK,”

Norski fluggreinandinn Hans Jørgen Elnæs telur aftur á móti að samkeppni í flugi milli Evrópu og Norður-Ameríku verði áfram hörð. „Þar með yrði pressa sett á tengiflug Icelandair og fargjöld félagsins gætu þá þróast á neikvæðan hátt því flug með millilendingu á Íslandi verður að vera samkeppnishæft í verði við beina flugið sem keppinautarnir bjóða,” útskýrði Norðmaðurinn í samtali við Túrista í ágúst.

Nýtt efni

Sjóðir bandaríska flugvélaframleiðandans Boeing minnkuðu um 3,9 milljarða dollara á fyrsta ársfjórðungi. Upphæðin jafngildir 550 billjónum íslenskra króna og skýringin á þessum mikla fjármagnsbruna liggur í endurteknum göllum í þeim flugvélum sem fyrirtækið framleiðir. Af þeim sökum hefur bandaríska flugöryggisstofnunin takmarkað afköstin í verksmiðjum Boeing við 38 Max þotur í mánuði. Þar með þurfa flugfélög …

Fyrr á þessu ári kynnti fyrirtækið til sögunnar Precious Honeyglow anansinn sem er aðeins um 600 1000 grömm að þyngd eða um það bil helmingi minni en hefðbundinn ananas.Í fréttatilkynningu frá fyrirtækinu segir að það kappkosti ávallt að uppfylla óskir kaupenda, hvort sem þær eru um sætara bragð, sjálfbærnisjónarmið og nú – stærð. Hið nýja …

Tekjur Icelandair af farþegaflugi námu rúmlega 27 milljörðum króna á fyrsta fjórðungi ársins og hafa þeir aldrei verið hærri á þessum tíma árs. Sætaframboðið hefur heldur aldrei verið meira en það jókst það um 21 prósent á milli ára og var farþegahópurinn 14 prósent fjölmennari núna en fyrstu þrjá mánuðina í fyrra. Þá stóðu farþegar …

Það seldust 183 þúsund Volvo bílar á fyrsta fjórðungi ársins sem var aukning um 12 prósent frá sama tíma í fyrra. Engu að síður dróst veltan saman um 2 prósent og rekstrarafkoman (Ebit) nam 4,7 milljörðum sænskra króna eða 61 milljarði kr. Það er töluvert undir spá greinenda sem höfðu að jafnaði gert ráð rekstrarhagnaði …

„Afkoma fyrsta ársfjórðungs var í takt við væntingar okkar en rekstrarniðurstaðan í janúarmánuði litaðist af áhrifum alþjóðlegrar umfjöllunar um eldgos á Reykjanesi. Við nýttum þann mikla sveigjanleika sem félagið býr yfir til að laga sætaframboð að markaðsaðstæðum og jukum fjölda tengifarþega um 48 prósent með aukinni áherslu á þann markað þar sem markaðurinn til Íslands …

Áður en skemmtiferðaskipin taka að fylla götur Ísafjarðar af forvitnum ferðalöngum eru tvær helgar að vori sem fylla bæinn af heldur ólíkum hópum fólks. Sú fyrri er páskahelgin þegar tónlistarfólk og áhangendur þeirra þyrpast í bæinn til að taka þátt í rokkhátíð alþýðunnar, Aldrei fór ég suður, og sú síðari er Fossavatnshelgin, sem fór fram …

Tekjur Finnair drógust saman um tvö prósent á fyrsta fjórðungi ársins þrátt fyrir að finnska flugfélagið hafi aukið framboðið. Skýringin á samdrættinum liggur í verkföllum, verri sætanýtingu og lægri tekjum af fraktflutningum samkvæmt uppgjöri félagsins sem birt var í morgun. Rekstrarkostnaður Finnair á fyrsta ársfjórðungi var á pari við sama tímabil í fyrra og tapaði …

Allt þar til að Boeing Max krísan hófst, í ársbyrjun 2019, framleiddi Boeing fleiri þotur en keppinauturinn, Airbus. Kyrrsetningar og endurteknir framleiðslugallar hafa hins vegar orðið til þess að hægt hefur á framleiðslunni í verksmiðlum Boeing og eftirspurnin minnkað. Í fyrra framleiddi Airbus 735 þotur en Boeing 528 og mun bilið að öllu óbreyttu breikka …