Ingibjörg Arnarsdóttir hefur verið ráðin í stöðu framkvæmdastjóra á nýju sameinuðu sviði fjármála og mannauðs hjá Isavia. Í tilkynningu segir að Ingibjörg hafi mikla stjórnunarreynslu á vettvangi fjármála og mannauðs. Nú síðast starfaði hún sem framkvæmdastjóri fjármála-, mannauðs- og verkefnastjórnar hjá Reiknistofu bankanna. Þar hafði hún m.a. yfirumsjón með fjármálum fyrirtækisins, mannauðsmálum og verkefnastýringu.
Svið fjármála og mannauðs hjá Isavia er önnur tveggja stoðeininga sem er hluti af móðurfélagi Isavia, sem annast rekstur Keflavíkurflugvallar. Sviðið sinnir þó jafnframt samstæðu Isavia í heild sinni.
„Við hjá Isavia hlökkum til að fá Ingibjörgu til starfa,“ segir Sveinbjörn Indriðason, forstjóri Isavia. „Það er ljóst að þekking hennar og reynsla, nú síðast hjá Valitor og Reiknistofu bankanna, mun koma Isavia til góða í þeim verkefnum sem fram undan eru.“
Ingibjörg tekur sæti í framkvæmdastjórn Isavia og hefur störf þann 1. desember næstkomandi.