Sóttvarnaráðstöfunum á landamærum Íslands verður fram haldið í óbreyttri mynd þar til 1. febrúar á næsta ári. Þetta var ákveðið á fundi ríkisstjórnar í morgun og sagt er frá á vef Stjórnarráðsins.
Þar segir jafnframt að frá og með 10. desember verði vottorð um að fólk hafi fengið COVID-19 og að sýking sé afstaðin tekin gild. Sá hópur fær þá undanþágu frá þeim kröfum sem annars eru gerðar. Næsta ákvörðun um fyrirkomulag á landamærum verður tekin eigi síðar en 15. janúar.
Ákvörðunin ríkisstjórnarinnar í morgun byggir m.a. á minnisblaði vinnuhóps heilbrigðisráðuneytisins um viðurkenningu vottorða og efnahagslegu mati starfshóps fjármála- og efnahagsráðuneytisins á tillögum að breyttum aðgerðum á landamærum.
Áfram er reglan þá sú að farþegar geta valið á milli þess að fara í tvær sýnatökur vegna COVID-19 með 5 daga sóttkví á milli þar til niðurstaða seinni sýnatöku liggur fyrir, eða sleppa sýnatöku og sitja í 14 daga sóttkví frá komunni til landsins.