Eldey og Kynnisferðir hafa undirritað samkomulag um sameiningu félaga í eignasafni Eldeyjar og Kynnisferða. Við það sameinast rekstur Kynnisferða, Arcanum Fjallaleiðsögumanna, Logakórs og Sportköfunarskóla Íslands, auk þess sem sameinað félag mun verða minnihlutaeigandi í Íslenskum Heilsulindum, Lava Center og Raufarhólshelli.
Eigendur Kynnisferða eignast 65 prósent hlut í sameiginlegu félagi og hluthafar Eldeyjarsjóðsins fá 35 prósent.
Markmið sameiningarinnar er að gera samrunaaðila betur í stakk búna fyrir öfluga viðspyrnu greinarinnar þegar ferðalög hefjast af fullum þunga, með auknum krafti í sölu- og markaðsstarfi samkvæmt því sem segir í tilkynningu.
Samkomulagið er gert með fyrirvara um samþykki Samkeppniseftirlitsins og munu samrunaaðilar ekki tjá sig frekar um viðskiptin meðan á málsmeðferð stendur.