Kjartan Briem hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Isavia ANS og mun hann hefja störf 1. janúar næstkomandi. Í tilkynningu segir að Kjartan hafi langa reynslu af alþjóðlegum samskiptum og hafi unnið á fjarskiptamarkaðnum á Íslandi í yfir tuttugu ár. Lengst af sem stjórnandi á tæknisviði og nú síðast sem framkvæmdastjóri tæknisviðs hjá Vodafone á Íslandi.
Kjartan er með M.Sc-gráðu í rafmagnsverkfræði frá Danmarks Tekniske Universitet (DTU) með áherslu á fjarskipti.
Isavia ANS ehf. er dótturfélag Isaiva ohf. og annast rekstur og uppbygginu flugleiðsöguþjónustu, þ.m.t flugumferðarþjónustu, fjarskipta- og leiðsögukerfa og aðra skylda starfsemi.
„Ég er afskaplega ánægð með að fá Kjartan í stjórnendateymi Isavia ANS,“ segir Elín Árnadóttir, stjórnarformaður félagsins, í tilkynningu. „Við í stjórn félagsins teljum að stjórnendareynsla hans og tækniþekking muni gagnast Isavia ANS vel og bjóðum við Kjartan velkominn til starfa.“