Samfélagsmiðlar

Geta aðeins mannað tvær til fimm farþegaþotur eftir áramót

Formaður Félags íslenskra atvinnuflugmanna segir Icelandair hafa lítið svigrúm til að bregðast við aukinni eftirspurn. Ástæðan er sú að félagið verður að öllu óbreyttu með mjög fáa flugmenn í vinnu í byrjun næsta árs.

Það eru 139 flugmenn á launum hjá Icelandair í dag en helmingi þeirra, samtals 68 flugmönnum, hefur verið sagt upp frá og með áramótum. Spurður um stöðu mála þá segir Jón Þór Þorvaldsson, formaður Félags íslenskra atvinnuflugmanna, að ekkert sé að frétta af endurráðningum eða afturköllun á uppsögnum.

„Það þarf að gefa úr vinnuskrá flugmanna fyrir janúarmánuð fimmtán dögum fyrir mánaðamót skv. reglugerð. Þannig að endanleg ákvörðun þarf að liggja fyrir á allra næstu dögum.“ 

Icelandair hefur í byrjun vetrar skorið niður flugáætlun sína meira en önnur norræn flugfélög. Með tæplega sjötíu flugmenn í vinnu eftir áramót, að öllu óbreyttu, þá getur félagið í raun aðeins mannað nokkrar flugvélar. Hversu margar í raun og veru segir Jón Þór, formaður FÍA, að byggist á flugáætlun og til hvaða áfangastaða verður flogið. Einnig hefur varavaktaþörf vegna veðurs, viðhalds, veikinda og þjálfana áhrif og líka orlof.

„Icelandair hefur verið að gera ráð fyrir fimm til átta áhöfnum á vél að teknu tilliti til ofangreindra þátta og svo þarf að taka tillit til þeirra flugmanna sem sinna þjálfun og skrifstofustörfum fyrir félagið,“ bætir Jón Þór við.

Hann segir að gróflega megi gera ráð fyrir að flugfélagið geti þá aðeins mannað um fjórar til sjö þotur eftir áramót. Formaður FÍA bendir á að Icelandair sé í dag með tvær fraktflugvélar í fullri notkun og þar með geti félagið aðeins notað tvær til fimm farþegaþotur frá og með áramótum.

„Svigrúmið er lítið sem ekkert til að bregðast við aukinni eftirspurn og það tekur tíma að þjálfa upp flugmenn sem hafa misst vinnuna og þurfa að fara í sí- og endurmenntun. Nýþjálfanir eins og á Boeing 737 Max taka mun lengri tíma eða um 60 daga pr áhöfn þrátt fyrir að menn hafi reynslu af þotuflugi,“ segir formaður FÍA að lokum.

Þess má geta að það voru 562 flugmenn að störfum hjá Icelandair sumarið 2019. Um síðustu áramót var 112 þeirra sagt upp vegna áframhaldandi kyrrsetningar Boeing MAX þotanna. Þar með voru 450 flugmenn með vinnu hjá flugfélaginu en flestir þeirra fengu uppsagnarbréf í vor vegna ástandsins sem Covid-19 hefur valdið.

Nýtt efni

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …

Play tapaði 3,1 milljarði króna fyrir skatt á fyrsta ársfjórðungi í fyrra en núna var tapið 19 prósent hærra eða 3,7 milljarðar króna. Félagið jók framboðið um 63 prósent á milli þessara tveggja fjórðunga en í flota félagsins voru sex til átta þotur í byrjun síðasta árs en núna eru þær tíu. Einar Örn Ólafsson, …

Sjóðir bandaríska flugvélaframleiðandans Boeing minnkuðu um 3,9 milljarða dollara á fyrsta ársfjórðungi. Upphæðin jafngildir 550 billjónum íslenskra króna og skýringin á þessum mikla fjármagnsbruna liggur í endurteknum göllum í þeim flugvélum sem fyrirtækið framleiðir. Af þeim sökum hefur bandaríska flugöryggisstofnunin takmarkað afköstin í verksmiðjum Boeing við 38 Max þotur í mánuði. Þar með þurfa flugfélög …

Fyrr á þessu ári kynnti fyrirtækið til sögunnar Precious Honeyglow anansinn sem er aðeins um 600 1000 grömm að þyngd eða um það bil helmingi minni en hefðbundinn ananas.Í fréttatilkynningu frá fyrirtækinu segir að það kappkosti ávallt að uppfylla óskir kaupenda, hvort sem þær eru um sætara bragð, sjálfbærnisjónarmið og nú – stærð. Hið nýja …

Tekjur Icelandair af farþegaflugi námu rúmlega 27 milljörðum króna á fyrsta fjórðungi ársins og hafa þeir aldrei verið hærri á þessum tíma árs. Sætaframboðið hefur heldur aldrei verið meira en það jókst það um 21 prósent á milli ára og var farþegahópurinn 14 prósent fjölmennari núna en fyrstu þrjá mánuðina í fyrra. Þá stóðu farþegar …

Það seldust 183 þúsund Volvo bílar á fyrsta fjórðungi ársins sem var aukning um 12 prósent frá sama tíma í fyrra. Engu að síður dróst veltan saman um 2 prósent og rekstrarafkoman (Ebit) nam 4,7 milljörðum sænskra króna eða 61 milljarði kr. Það er töluvert undir spá greinenda sem höfðu að jafnaði gert ráð rekstrarhagnaði …