Nýtt tímarit fyrir fagfólk í ferðaþjónustu

Ritstjórn We Guide, frá vinstri: Elín Esther Magnúsdóttir, Davíð Arnar Runólfsson og Kaśka Paluch.

Þann 18. desember kemur út tímaritið We Guide sem er ætlað öllum þeim sem starfa við ferðaþjónustu á Íslandi. Að blaðinu standa þrír leiðsögumenn sem misstu vinnuna í haust vegna Covid-19.

Í tilkynningu segir að efnistök verði fjölbreytt enda tilheyri ferðaþjónustunni fjölbreyttur hópur úr mörgum starfsstéttum.

„Í haust var ljóst að leiðsögumenn myndu ekki hverfa til fyrri starfa, í bráð að minnsta kosti. Við misstum öll vinnuna eins og flestir aðrir en frekar en að sitja aðgerðalaus fórum við að tala um hvernig við gætum nýtt þennan tíma og datt í hug að það væri gaman ef þessi stóri hópur sem tilheyrir ferðaþjónustunni hefði sitt eigið blað. Svona hálfgert fagtímarit,“ er haft eftir Davíð Arnari Runólfssyni, einum af stofnendum We Guide, í tilkynningu.

„Samkvæmt Hagstofunni voru um 30.000 manns í störfum tengdum ferðaþjónustunni árið 2019. Það er gríðarlegur fjöldi, og þessi störf eru mjög fjölbreytt. En við erum öll með sama markmið – að veita ferðamönnum góða þjónustu svo þeir njóti dvalarinnar. We Guide verður vettvangur til að miðla upplýsingum, reynslu og sögum sem nýtast okkur öllum. En fyrst og fremst viljum við að blaðið verði skemmtilegt,“ segir Kaśka Paluch sem einnig kemur að útgáfunni.

Blaðið verður á ensku, enda segir Kaśka að hluti lesenda verði ekki með íslensku sem móðurmál. „Til að ná til allra sem vinna í ferðaþjónustu verðum við að taka tillit til þess að mörg störf eru unnin af fólki sem flytur hingað frá öðrum löndum. Langflestir eru að læra íslensku, en það gengur misvel. Enska er væntanlega það tungumál sem við notum við flesta kúnnana okkar, svo okkur þótti eðlilegt að nota tungumál sem flestir skilja.“

Jafnframt því að undirbúa fyrsta tölublaðið, stendur ritstjórn blaðsins fyrir söfnun á Karolina Fund. Það fé sem safnast verður nýtt til vinnu við heimasíðuna og til að borga lausapennum fyrir sína vinnu. Hægt er að skoða verkefnið á Karolina Fund.