Til að koma til móts við ferðaþjónustunna, vegna ástandsins sem Covid-19 hefur valdið, þá hefur fyrstu gjalddögum Ferðaábyrgðasjóðs verið frestað samkvæmt ákvörðun Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur, ferðamálaráðherra. Fyrsti gjalddaginn verður því 1. desember 2021 í stað 1. mars nk.
Hlutverk Ferðaábyrgðasjóðs er að veita ferðaskrifstofum lán til að endurgreiða ferðamönnum greiðslur sem höfðu verið greiddar vegna ferða sem var aflýst eða þær afpantaðar á tímabilinu 12. mars til og með 30. september 2020.
Umfang lánveitinga sjóðsins nemur rétt rúmlega þremur milljörðum króna samkvæmt því sem fram kemur á vef Stjórnarráðsins.
„Tilgangur sjóðsins er að aðstoða íslensk ferðaþjónustufyrirtæki við að standa við skuldbindingar sínar og styrkja viðspyrnu þeirra að loknum kórónuveirufaraldrinum. Því er ljóst að innheimtuaðgerðir vegna gjalddaga 1. mars gætu leitt til gjaldþrota og myndi vinna gegn markmiðum sjóðsins. Hagsmunum ríkissjóðs og ferðaskrifstofa er því best borgið með því að gjalddaganum verði frestað til 1. desember,“ segir Þórdís Kolbrún.