Isavia fær aukið hlutafé frá ríkinu

Farþegar í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Mynd: Isavia

Gengið var frá 15 milljarða króna hlutafjáraukningu á hluthafafundi Isavia sem haldinn var þann 12. janúar síðastliðinn. Í tilkynningu segir að flutafjáraukningunni sé ætlað að mæta rekstrartapi vegna heimsfaraldursins og gerir hún félaginu kleift að hefja vinnu við uppbyggingu á Keflavíkurflugvelli á ný. 

„Það er gríðarlega mikilvægt að við verðum reiðubúin þegar flugumferð verður orðin álíka og fyrir heimsfaraldur. Fram að því getum við ráðist í framkvæmdir sem miða að því að gera Keflavíkurflugvöll samkeppnishæfari en áður. Það skilar sér til þeirra fjölmörgu fyrirtækja sem starfa á flugvellinum, og ferðaþjónustunnar í heild,“ segir Sveinbjörn Indriðason, forstjóri Isavia, í tilkynningu.

Hann segir það ljóst að hlutafjáraukningin veitir Isavia líka svigrúm til að mæta mismunandi sviðsmyndum út úr COVID-19 og á sama tíma auðvelda flugfélögum að hefja flug á ný þegar þar að kemur og vísar þar til markaðsstuðningis.

„Okkur er falin mikil ábyrgð að sinna einum af lykilinnviðum landsins og við ætlum okkur að standa undir þeirri ábyrgð,“ bætir Sveinbjörn við. 

Í tilkynningunni segir að fyrirhuguðum framkvæmdum á Keflavíkurflugvelli sé ætlað að styrkja samkeppnishæfni flugvallarins og tengistöðvarinnar með því að bæta þjónustu við viðskiptavini, bæta aðstöðu flugvéla og farþega, stytta afgreiðslutíma og auka þannig afköst og skilvirkni hans. Áætlanir gera ráð fyrir að þeim framkvæmdum, sem fyrirhugað er að ráðast í að svo stöddu verði að fullu lokið árið 2025.