Varfærin skref á landamærunum í vor

Ferðamenn sleppa við sóttkví við komuna til landsins ef þeir geta framvísað vottorði sem sýnir fram á að COVID-19 sýking sé afstaðin eða gildu bólusetningarvottorði.

kef taska 860
Sóttvarnarreglur varðandi komufarþega munu breytast þann 1. maí.

Á fundi ríkisstjórnarinnar í morgun var ákveðið að taka „varfærin skref“ til afléttingar sóttvarnaraðgerða á landamærum þann 1. maí nk. Munu breytingarnar taka mið af ástandi faraldursins á brottfararstað komufarþega samkvæmt því sem segir í frétt á vef Stjórnarráðsins

„Í ljósi landfræðilegrar sérstöðu Íslands og annarra sóttvarnasjónarmiða verður harðari sóttvarnaraðgerðum hins vegar beitt fyrir hvern áhættuflokk en þeim sem lögð eru til í tilmælum Evrópusambandsins, að minnsta kosti fyrst um sinn,“ segir í fréttinni.

Þar kemur fram að farþegar frá hættuminni löndum verða undanþegnir sóttkví og síðari skimun geti þeir framvísað vottorði um neikvæða niðurstöðu PCR-prófs innan tiltekins tíma.

Byggt verður á áhættumati Sóttvarnarstofnunar Evrópu og ríki flokkuð í græn, appelsínugul, rauð og grá eftir stöðu faraldursins eins og sjá má hér fyrir neðan. Sú flokkun verður uppfærð reglulega.

„Komufarþegar sem geta framvísað gildu vottorði sem sýnir fram á að COVID-19 sýking sé afstaðin verða áfram undanþegnir sóttvarnaaðgerðum á landamærum og það sama mun gilda um komufarþega sem geta framvísað gildu bólusetningarvottorði,“ segir að lokum í frétt Stjórnarráðsins.