Meta umfjöllun um Ísland á 5,5 milljarða króna

Út Let it out herferð Inspired by Icelanda sem Íslandsstofa hafði umsjón með. Mynd: Íslandsstofa

Það birtust rúmlega átján hundruð greinar og fréttir um Ísland sem áttu uppruna sinn í samskiptum Íslandsstofu við fjölmiðla eða fjölluðu um verkefni á hennar vegum á síðasta ári. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Íslandsstofu.

„Umfjallanirnar náðu til um 750 milljón neytenda á helstu mörkuðum og er virði umfjallanna gróflega metið á um 5,5 milljarða ef miðað er við meðaltalsverð við kostnað á birtingu,“ segir í tilkynningunni.

Þar segir ennfremur að vegna Covid-19 hafi samskipti Íslandsstofu við erlenda fjölmiðla hafa verið með óhefðbundnum hætti. Ýmsar áskoranir hefur þurft að yfirstíga til að koma Íslandi á framfæri á undanförnum mánuðum.

„Síðastliðið sumar var Ísland í kastljósinu fyrir góðan árangur í baráttunni gegn kórónuveirunni og vann Íslandsstofa náið með utanríkisráðuneytinu við að svara fyrirspurnum áhugasamra fjölmiðla. Fyrsti hluti markaðsherferðarinnar Saman í sókn hófst svo í júlí og skilaði hún um eitt þúsund umfjöllunum um Ísland og herferðina.“

Til viðbótar birtust átta hundruð umfjallanir til viðbótar og flestar í Bandaríkjunum, næst flestar voru í Þýskalandi, því næst í Bretlandi og loks í Frakklandi