Settur var upp teljari í gær á vegum Ferðamálastofu á stikaðri gönguleið að eldgosinu í Geldingadölum. Teljarinn mælir gangandi umferð til og frá gosslóð og sendir frá sér uppfærslu einu sinni á sólarhring. Tölur unnar upp úr talningargögnum eru nú aðgengilegar í Mælaborði ferðaþjónustunnar.
Þar sést að í gær fóru 4786 einstaklingar fram hjá teljaranum og um fimmtungur þeirra var á ferðinni milli klukkan 19 og 20.
Samkvæmt tilkynningu frá Ferðamálastofu þá munu talningagögnin nýtast við skipulagningu og ákvarðanatöku Almannavarna og fleiri aðila sem koma að starfsemi á svæðinu, fyrir utan að vera til gagns og gamans fyrir almenning.
Uppsetning og viðhald teljara er í höndum telja.is og gagnavinnsla og sjónræn framsetning er unnin af Ferðamálastofu.
Nálgast má gögnin í Mælaborði ferðaþjónustunnar og þar eru einnig tölulegar upplýsingar um fjölda gesta á yfir 20 öðrum vinsælum áfangastöðum sem taldir eru með sama hætti.