Annan í páskum er von á tilkynningu frá breskum stjórnvöldum um hvort millilandaflug verði með eðlilegri hætti frá og með 17. maí eða ekki. Í dag þurfa Bretar til að mynda að fylla út sérstök eyðublöð áður en ferðast er til annarra landa og þeirra bíður svo sóttkví við heimkomuna.