Samfélagsmiðlar

Byrja að fljúga til Íslands frá þremur bandarískum borgum í maí

Bandaríska flugfélagið Delta hefur haft áform um að fljúga til Íslands í sumar frá bæði New York og Minneapolis. Nú bætast við daglegar ferðir frá Boston.

Bandaríska flugfélagið Delta hóf að fljúga til Íslands sumarið 2011.

Nú í maí ætlar Delta Air Lines að hefja daglegt flug til milli Íslands og þriggja borga í Bandaríkjunum. Þar á meðal er Boston, sem er nýr áfangastaður. Hinar borgirnar eru New York og Minneapolis/St. Paul, en þangað hefur Delta flogið undanfarin ár ef 2020 eru undanskilið.

Fyrsta brottför til JFK flugvallar í New York er á dagskrá 1. maí, til Boston fer fyrsta ferð 20. maí og til Minneapolis/St. Paul verður byrjað að fljúga 27. maí.

Í tilkynningu frá bandaríska flugfélaginu segir að ákvörðunin um að hefja daglegt flug milli Íslands og þessara þriggja borga í Bandaríkjunum byggi á því að Ísland er fyrsta Evrópulandið til að heimila komu bandarískra
ferðamanna sem hafa fengið fulla bólusetningu án þess að þeir þurfi að fara í sóttkví.

Ísland er þannig fyrsti áfangastaðurinn í Evrópu sem stendur ferðaþyrstum Bandaríkjamönnum til boða frá því að heimsfaraldurinn byrjaði fyrir ári síðan.

„Við vitum að viðskiptavinir okkar eru spenntir fyrir því að komast aftur út í heim. Eftir því sem traust á ferðalögum eykst, þá vonumst við til að fleiri lönd opni fyrir bólusettum ferðamönnum og skapi þannig aukin tækifæri fyrir fólk til að tengja og upplifa,“ segir Joe Esposito, framkvæmdastjóri
leiðakerfisstýringar Delta Air Lines.

Farþegar Delta frá Bandaríkjunum mun þurfa að færa sönnur á fullri bólusetningu eða að þeir hafi náð sér af Covid-19 sýkingu. Farþegar til Bandaríkjanna munu þurfa að sýna neikvæða niðurstöðu úr
Covid-19 skimun að því segir í tilkynningu.

Sem fyrr segir mun Delta fljúga daglega til borganna þriggja í ferðirnar verða notaðar Boeing 757 þotur. Í þeim sem fljúga til Boston eru 193 sæti en 168 sæti í þeim flugvélum sem fljúga héðan til New York og Minneapolis.

Nýtt efni

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …

Play tapaði 3,1 milljarði króna fyrir skatt á fyrsta ársfjórðungi í fyrra en núna var tapið 19 prósent hærra eða 3,7 milljarðar króna. Félagið jók framboðið um 63 prósent á milli þessara tveggja fjórðunga en í flota félagsins voru sex til átta þotur í byrjun síðasta árs en núna eru þær tíu. Einar Örn Ólafsson, …

Sjóðir bandaríska flugvélaframleiðandans Boeing minnkuðu um 3,9 milljarða dollara á fyrsta ársfjórðungi. Upphæðin jafngildir 550 billjónum íslenskra króna og skýringin á þessum mikla fjármagnsbruna liggur í endurteknum göllum í þeim flugvélum sem fyrirtækið framleiðir. Af þeim sökum hefur bandaríska flugöryggisstofnunin takmarkað afköstin í verksmiðjum Boeing við 38 Max þotur í mánuði. Þar með þurfa flugfélög …

Fyrr á þessu ári kynnti fyrirtækið til sögunnar Precious Honeyglow anansinn sem er aðeins um 600 1000 grömm að þyngd eða um það bil helmingi minni en hefðbundinn ananas.Í fréttatilkynningu frá fyrirtækinu segir að það kappkosti ávallt að uppfylla óskir kaupenda, hvort sem þær eru um sætara bragð, sjálfbærnisjónarmið og nú – stærð. Hið nýja …

Tekjur Icelandair af farþegaflugi námu rúmlega 27 milljörðum króna á fyrsta fjórðungi ársins og hafa þeir aldrei verið hærri á þessum tíma árs. Sætaframboðið hefur heldur aldrei verið meira en það jókst það um 21 prósent á milli ára og var farþegahópurinn 14 prósent fjölmennari núna en fyrstu þrjá mánuðina í fyrra. Þá stóðu farþegar …