Samfélagsmiðlar

Farþegum á Egilsstaðarflugvelli fækkaði um aðeins 11 prósent

Flugstöðin á Egilsstöðum.

Það voru 4.608 farþegar sem áttu leið um flugstöðina á Egilsstöðum í febrúar. Til samanburðar voru farþegarnir á Keflavíkurflugvelli rétt sjö þúsund fleiri.

Þar á bæ nam samdrátturinn í síðasta mánuði 97 prósentum en 11 prósentum á Egilsstöðum. Á Reykjavíkurflugvelli fækkaði farþegum um fjórðung og um 29 prósent á Akureyrarflugvelli.

Síðasti mánuður var sá besti í innanlandsfluginu síðan heimsfaraldurinn hófst þegar horft er til fjölda farþega. Í heildina fækkaði þeim fjórðung en svo lítill hefur samdrátturinn ekki verið síðan í mars í fyrra eins og sjá má á línurítinu hér fyrir neðan.

Nýtt efni

Kínverski rafbílaframleiðandinn BYD lækkaði verð á bílum sínum á íslenska markaðnum í febrúar s.l. í kjölfar þess að skattaívilnanir til kaupa á nýjum rafbílum féllu niður. Skattafrádrátturinn gat numið allt að 1,3 milljónum króna en nú fæst 900 þúsund króna styrkur frá Orkusjóði í staðinn. Með lægra verði frá Kína gat Vatt, sem er með …

Langvarandi deilur írska lággjaldaflugfélagsins Ryanair við ítölsk yfirvöld halda áfram. Nú hafa samkeppnisyfirvöld á Ítalíu (AGCM) fyrirskipað Ryanair að aflétta hindrunum á því að ferðaskrifstofur selji flugmiða í ferðir félagsins. AGCM hóf í september síðastliðinn rannsókn á meintri misnotkun félagsins á markaðsráðandi stöðu. Ryanair er umsvifamesta flugfélagið á ítalska ferðamarkaðnum, með um 34 prósenta hlutdeild, …

Play gaf það út í síðasta mánuði að ónefndur hópur meðal stærstu hluthafa flugfélagsins auk annarra fjárfesta hefði skuldbundið sig til að leggja félaginu til 4,5 milljarða króna. Tveir af þeim fjórum lífeyrissjóðum sem eru á lista yfir stærstu hluthafanna sögðust ætla að taka þátt. Rökin fyrir forstjóraskiptunum um síðustu mánaðamót svo þau að Einar …

Lofthelgin yfir Ísrael, Líbanon, Jórdaníu og Írak var lokað á laugardagskvöld eða flug þar um háð miklum takmörkunum. Þetta hafði auðvitað mest áhrif á flug innan svæðisins en líka á yfirflug véla á milli heimsálfa. Í gær var tímabundnum takmörkunum aflétt þegar árásum Írana á skotmörk í Ísrael linnti.  Flugöryggisstofnun Evrópu (The European Union Aviation …

Stjórnendur flugfélagsins Westjet sóttu um lendingartíma á Keflavíkurflugvelli fyrir sumarvertíðina 2020 og þá var ætlunin að fljúga hingað fjórum sinnum í viku frá Toronto, fjölmennustu borg Kanada. Sala á flugmiðum fór þó aldrei í loftið og áður Covid-faraldurinn hófst í ársbyrjun 2020 hafði Westjet gefið út að ekkert yrði að Íslandsfluginu. Stuttu síðar lokuðust landamæri …

Umhverfisstofnun er farin að fikra sig áfram með álagsstýringu á ferðamannastöðum. „Við erum að setja af stað pöntunarkerfi í Landmannalaugum i sumar,“ sagði Inga Dóra Hrólfsdóttir, sviðsstjóri sviðs náttúruverndar hjá Umhverfisstofnun, á ársfundi náttúruverndarnefnda nýverið. „Þetta er mjög einföld aðferð,“ sagði Inga Dóra: Ef þú kemur akandi þarftu að bóka stæði og borga fyrir það. …

Stjórnendur rafbílaframleiðandans Tesla leita nú leiða til að draga úr kostnaði og horfa þeir til þess að segja upp 14 þúsund starfsmönnum eða um 10 prósent af vinnuaflinu. Þetta kemur fram í tölvupósti sem forstjóri félagsins, Elon Musk, sendi til starfsfólks samkvæmt frétt sem fagritið Electrek birti í morgun. „Ég hata ekkert meira en þetta …

Stefnt er að því að á hótelinu verði veitingastaður, ráðstefnu- og veislusalur ásamt heilsulind. Síðan er ætlunin að stækka Skógarböðin og tengja þau hótelinu.  Samkvæmt fréttatilkynningu er um að ræða fimm milljarða króna fjárfestingu. Áætlað er að hótelið verði opnað eftir tvö ár, vorið 2026.  „Þetta er virkilega spennandi verkefni sem við hjá Íslandshótelum hlökkum …