Það er Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra, sem skipar stjórn Isavia en í henni eiga fulltrúar stjórnarflokkanna þriggja auk fulltrúa Miðflokks og Pírata.
Þannig hefur fyrirkomulagið verið á þessu kjörtímabili sem lýkur nú í haust. Og á aðalfundi Isavia í dag var umboð núverandi stjórnar endurnýjað.
Orri Hauksson, fulltrúi Sjálfstæðisflokksins, verður áfram stjórnarformaður en með honum í stjórn er Píratinn Eva Pandora Baldursdóttir, Matthías Páll Imsland frá Framsókn, Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir frá Miðflokki og Valdimar Halldórsson er fulltrúi Vinstri-Grænna.
Líkt og Túristi hefur áður fjallað um þá tíðkast það ekki í löndunum í kringum okkur að stjórnmálaflokkar skipi sitt fólk í stjórnir flugvalla.