Í gamla Eimskipahúsinu við Tryggvagötu er Radisson 1919 hótelið til húsa en bæði fasteignin og hótelið sjálft er í eigu Eikar. Og áhrif Covid-19 á hótelreksturinn leyna sér ekki í uppgjöri fasteignafélagsins fyrir síðasta ár.
Þar kemur fram að rekstrartekjur Radisson 1919 hafi verið 162 milljónir króna í fyrra. Þær voru 662 milljónir árið 2019 og lækkunin milli ára því 500 milljónir kr.
Á þriðja fjórðungi síðasta árs voru tekjurnar hærri en kostnaðurinn en því var öfugt farið hina mánuði ársins eins og sjá má á grafinu hér fyrir neðan.
Rekstrartap Radisson 1919 nam 59 milljónum kr. í fyrra en árið áður var afkoman jákvæð um 131 milljón kr.