Það var flogið héðan til fjórtán erlendra borga í mars en í sumum tilfellum var aðeins um eina brottför að ræða.
Þannig fór spænska lággjaldaflugfélagið Vueling eina ferð hingað frá Barcelona í lok mars og Air Baltic tók upp þráðinn í Íslandsflugi sínu frá Riga.
Aftur á móti voru flugferðirnar nokkuð reglulegar til annarra borga og flestar voru þær til Kaupmannahafnar og Amsterdam eins og sjá má á súluritinu hér fyrir neðan.