Samfélagsmiðlar

Spáin gerði ráð fyrir sáralitlu framboði en niðurstaðan varð enn minni

Sætisframboðið hjá Icelandair á fyrsta fjórðungi ársins var fjórðungi minna en spáð var í fjárfestakynningu í tengslum við hlutafjárútboð félagsins síðastliðið haust.

Þar var gert ráð fyrir að framboðið yrði að jafnaði 77 milljónir sætiskílómetra á mánuði. Raunin varð hins vegar rétt um 59 milljónir sætiskílómetrar eða 24 prósent minna en spáð var.

Munurinn á spánni og raunverulegu framboði er þó lítill þegar horft er til fyrsta fjórðungs ársins 2019. Ef spáin hefði gengið eftir hefði samdrátturinn numið 92 prósentum en hann varð 94 prósent í raun og veru.

Spá sérfræðinga Icelandair í haust gerði ráð fyrir að framboðið hjá félaginu á seinni hluta síðasta árs yrði nokkru meira en raunin varð eins og sjá má hér fyrir neðan. Það sama á svo við um fyrsta fjórðung þessa árs sem fyrr segir.

Nýtt efni

Play gaf það út í síðasta mánuði að ónefndur hópur meðal stærstu hluthafa flugfélagsins auk annarra fjárfesta hefði skuldbundið sig til að leggja félaginu til 4,5 milljarða króna. Tveir af þeim fjórum lífeyrissjóðum sem eru á lista yfir stærstu hluthafanna sögðust ætla að taka þátt. Rökin fyrir forstjóraskiptunum um síðustu mánaðamót svo þau að Einar …

Lofthelgin yfir Ísrael, Líbanon, Jórdaníu og Írak var lokað á laugardagskvöld eða flug þar um háð miklum takmörkunum. Þetta hafði auðvitað mest áhrif á flug innan svæðisins en líka á yfirflug véla á milli heimsálfa. Í gær var tímabundnum takmörkunum aflétt þegar árásum Írana á skotmörk í Ísrael linnti.  Flugöryggisstofnun Evrópu (The European Union Aviation …

Stjórnendur flugfélagsins Westjet sóttu um lendingartíma á Keflavíkurflugvelli fyrir sumarvertíðina 2020 og þá var ætlunin að fljúga hingað fjórum sinnum í viku frá Toronto, fjölmennustu borg Kanada. Sala á flugmiðum fór þó aldrei í loftið og áður Covid-faraldurinn hófst í ársbyrjun 2020 hafði Westjet gefið út að ekkert yrði að Íslandsfluginu. Stuttu síðar lokuðust landamæri …

Umhverfisstofnun er farin að fikra sig áfram með álagsstýringu á ferðamannastöðum. „Við erum að setja af stað pöntunarkerfi í Landmannalaugum i sumar,“ sagði Inga Dóra Hrólfsdóttir, sviðsstjóri sviðs náttúruverndar hjá Umhverfisstofnun, á ársfundi náttúruverndarnefnda nýverið. „Þetta er mjög einföld aðferð,“ sagði Inga Dóra: Ef þú kemur akandi þarftu að bóka stæði og borga fyrir það. …

Stjórnendur rafbílaframleiðandans Tesla leita nú leiða til að draga úr kostnaði og horfa þeir til þess að segja upp 14 þúsund starfsmönnum eða um 10 prósent af vinnuaflinu. Þetta kemur fram í tölvupósti sem forstjóri félagsins, Elon Musk, sendi til starfsfólks samkvæmt frétt sem fagritið Electrek birti í morgun. „Ég hata ekkert meira en þetta …

Stefnt er að því að á hótelinu verði veitingastaður, ráðstefnu- og veislusalur ásamt heilsulind. Síðan er ætlunin að stækka Skógarböðin og tengja þau hótelinu.  Samkvæmt fréttatilkynningu er um að ræða fimm milljarða króna fjárfestingu. Áætlað er að hótelið verði opnað eftir tvö ár, vorið 2026.  „Þetta er virkilega spennandi verkefni sem við hjá Íslandshótelum hlökkum …

Hver hlutur í Icelandair kostaði fyrir opnun Kauphallarinnar í morgun 1 krónu og fjóra aura. Verðið hefur ekki verið svona lágt síðan í nóvember árið 2020 en þá hafði félagið nýverið efnt til hlutafjárútboðs þar sem sölugengið var 1 króna á hlut. Í dag er markaðsvirði Icelandair 43 milljarðar króna og hefur það lækkað um …

Stafræna byltingin gerði fjarvinnu auðveldari og heimsfaraldurinn festi það vinnufyrirkomulag í sessi. Stór og vaxandi hópur fólks nýtir sér þá möguleika sem felast í þessu frelsi - að geta unnið verk sín eiginlega hvar sem er í heiminum, skila unnum verkum af sér án þess að mæta á tiltekinn stað á tilgreindum tíma. Áætlað er …