Icelandair réði fjörutíu og átta flugmenn aftur til vinnu nú í lok vetrar. Í þeim hópi var engin kona og ekki er útlit fyrir að fleiri bætist við á launaskrá félagsins á næstunni.
Engar ákvarðanir hafa nefnilega verið teknar hjá flugfélaginu um endurráðningar á flugmönnum að svo stöddu. Þetta kemur fram í svari frá Icelandair.
Í dag eru 118 flugmenn starfandi hjá flugfélaginu og þar af þrjár konur. Þær voru jafn margar í byrjun árs þegar aðeins 71 flugmaður var í vinnu hjá félaginu.
Skýringin á því að konunum hefur ekki fjölgað síðan þá er sú að flugmenn eru endurráðnir eftir starfsaldri. Hlutfall flugkvenna hjá Icelandair var áður fyrr hærra en hjá nokkru öðru vestrænu flugfélagi líkt og Túristi fjallaði um á sínum tíma.
Þurfa miklu fleiri flugmenn ef framboð á að aukast
Fjöldi flugmanna á launaskrá Icelandair gefur vísbendingu um hversu mikil umsvif félagsins verða á næstunni. Þannig voru 562 flugmenn á launaskrá hjá Icelandair sumarið 2019 eða 79 prósent fleiri en í dag. Hins vegar hefur Icelandair gefið út að framboðið í sumar verði um 25 til 30 prósent minna en í hittifyrra.
Eigi það að ganga eftir liggur í augum uppi að félagið þarf að kalla mun fleiri flugmenn til starfa.