Skandinavíska flugfélagið SAS hefur lengi haldið út reglulegum ferðum til Keflavíkurflugvallar frá bæði Ósló og Kaupmannahöfn.
Aftur á móti hefur Íslandsflug félagsins frá Arlanda flugvelli í Stokkhólmi verið takmarkað. Í sumar var þó stefnt á áætlunarflug hingað frá sænsku höfuðborginni frá lokum júní og fram í ágúst. Af því verður þó ekki að þessu sinni samkvæmt svari frá SAS við fyrirspurn Túrista.
Áfram ætlar SAS þó á að halda úti tíðum ferðum til Íslands frá höfuðborgum Noregs og Danmerkur í sumar. Fyrsta ferð er á dagskrá þann 24. maí.
Núgildandi sumaráætlun SAS gerir ráð fyrir um helmingi færri brottförum frá Keflavíkurflugvelli en sumarið 2019.