Fjöldi brottfara frá Keflavíkurflugvelli hefur verið í kringum tvær til þrjár á dag að jafnaði það sem af er ári. Á því hafa þó verið nokkrar undantekningar eins og sjá má á grafinu hér fyrir neðan.
Þannig voru ferðirnar í fyrstu viku ársins, sem hófst mánudaginn 4. janúar, fjörutíu ein talsins. Skýringin á því liggur meðal annars í þeim fjölda Íslendinga sem flaug til síns heima eftir að hafa dvalið hér yfir jól og áramót.
Samkvæmt talningu Ferðamálastofu flugu þannig sex þúsund Íslendingar frá Keflavíkurflugvelli í janúar en þeir voru rétt rúmlega tvö þúsund í febrúar.
Það má þó búast við að fleiri útlendingar hafi verið á ferðinni í síðustu viku en sú var sú næststærsta í ár þegar horft er til fjölda flugferða. Samtals voru brottfarirnar nefnilega þrjátíu og fimm talsins og fylltust meðal annars sóttvarnarhótel á höfuðborgarsvæðinu.