Það eru sex áætlunarferðir til Bandaríkjanna á dagskrá Keflavíkurflugvallar í dag en það eru aðeins bólusettir íbúar Bandaríkjanna sem geta nýtt sér þessar ferðir.
Bandarísk landamæri eru nefnilega ennþá lokuð fyrir útlendingum og stjórnvöld þar í landi hafa ekki gefið út neinar yfirlýsingar um breytingar þar á. Öfugt við það sem skilja mátti á frétt Mbl.is fyrr í dag. Þar sagði að bólusettir farþegar geti nú ferðast héðan til Bandaríkjanna án takmarkanna í kjölfar breytts áhættumats Sóttvarnarstofnunnar Bandaríkjanna.
Í svari frá sendiráði Bandaríkjanna hér á landi, við fyrirspurn Túrista, segir að ferðabannið sem gilt hefur síðustu mánuði sé ennþá í gildi.