Fasteignafélagið Kaldalón hefur keypt allt hlutafé Hvannar ehf. en það félag á Storm hótel sem er 93 herbergja hótelbygging við Þórunnartún í Reykjavík sem Keahótelin leigja.
Við viðskiptin tekur Kaldalón yfir skuldir Hvannar upp á nærri 1,7 milljarð króna og greiðir seljendunum með hlut í fasteignafélaginu að markaðsvirði 500 milljónir króna.
Í kauphallartilkynningu frá Kaldalóni segir að samhliða kaupunum á Hvönn þá hafi náðst samkomulag við Bandaríkjamanninn Jonathan B. Rubini um kaup á 277 milljón hlutum í Kaldalóni á genginu 1,30. Kaupverðið er því um 360 milljónir króna.
Í tilkynningunni kemur ekki fram að áðurnefndur Rubini hefur verið einn stærsti eigendi Keahótelanna frá árinu 2017 og auk þess stjórnarformaður hótelkeðjunnar. En sem fyrr segir eru Keahótelin með Storm hótelið á leigu.
Og það eru meðeigendur Rubini í Keahótelunum, auk framkvæmdastjórans Páls Sigurjónssson, sem nú selja hótelbygginguna til Kaldalóns. Páll átti sjálfur fimmtungs hlut í Hvönn.
Sem fyrr segir þá fá seljendurnir greitt með hlutum í Kaldalóni. Þar með verða eigendur Keahótelanna, seljendur Hvannar auk Rubini, meðal stærstu hluthafa fasteignafélagsins.
Samkvæmt ársreikningi Hvannar þá ber félaginu að greiða 319 milljónir króna í ár upp í skuldir sínar. Sú afborgun er fjórfalt hærri félagið átti að greiða í fyrra og næstu ár.
Líkt og Túristi hefur áður fjallað um þá varð fyrrum móðurfélag Keahótelanna, K acqusitions, gjaldþrota í byrjun þessa árs. Stofnað var nýtt félag um hlutinn í hótelkeðjunni og eigendur þess eru fyrrum eigendur gamla móðurfélagsins og Landsbankinn sem fer með 35 prósent hlut.