Samfélagsmiðlar

Í samstarf við stærsta flugfélag Spánar

vueling airbus

Spænska lágfargjaldaflugfélagið Vueling kynnti nýverið til sögunnar Vueling Global sem er ný þjónustu sem þróuð er í samstarfi við íslenska tæknifyrirtækið Dohop.

Vueling Global auðveldar viðskiptavinum flugfélagsins að bóka fjölbreytt úrval af tengiflugi um allan heim og tvinnar þar saman leiðakerfi Vueling og fjölmargra samstarfsaðila. Tækni Dohop gerir Vueling kleift að bjóða slíka þjónustu hnökralaust samkvæmt því sem segir í tilkynningu.

„Vueling hefur náð góðum tökum á nýjustu tækni og getur því hreyft sig hratt og aðlagast breyttum kröfum viðskiptavina og markaðarins í heild. Ein slík krafa er að flugfélög geti afgreitt löng og oft flókin tengiflug um allan heim án vandkvæða, frá brottför til áfangastaðar. Með tækni og þjónustu Dohop getur Vueling tengt sín leiðakerfi við samstarfsaðila og boðið slíka þjónusta á skilvirkan hátt gagnvart viðskiptavinum sínum,“ segir Davíð Gunnarsson, framkvæmdastjóri Dohop.

„Vueling hefur áður tengst öðrum flugfélögum á borð Qatar Airlines og American Airlines. Tækni Dohop mun hins vegar auðvelda okkur að bjóða upp á tengiflug með fleiri flugfélögum og svara aukinni eftirspurn eftir þeim, en rúmlega 10% af okkar farþegum 2019 bókuðu tengiflug. Samhliða aukinni þjónustu og vexti Vueling mun þessi lausn Dohop breyta El Prat í alþjóðlegan tengiflugvöll,“ segir Charlotte Dumesnil, framkvæmdastjóri sölu og dreifingar hjá Vueling.

Vueling er ekki fyrsta flugfélagið sem hleypir af stokkunum slíku leiðakerfi í samvinnu við Dohop. Meðal flugfélaga sem þegar nýta tækni Dohop nú þegar eru easyJet, Eurowings, Air France, Avianca, Jetstar og fleiri.

Þess má geta að Vueling flýgur til Íslands frá Barcelona nú í sumar líkt og félagið hefur gert undanfarin ár.

Nýtt efni

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …

Play tapaði 3,1 milljarði króna fyrir skatt á fyrsta ársfjórðungi í fyrra en núna var tapið 19 prósent hærra eða 3,7 milljarðar króna. Félagið jók framboðið um 63 prósent á milli þessara tveggja fjórðunga en í flota félagsins voru sex til átta þotur í byrjun síðasta árs en núna eru þær tíu. Einar Örn Ólafsson, …

Sjóðir bandaríska flugvélaframleiðandans Boeing minnkuðu um 3,9 milljarða dollara á fyrsta ársfjórðungi. Upphæðin jafngildir 550 billjónum íslenskra króna og skýringin á þessum mikla fjármagnsbruna liggur í endurteknum göllum í þeim flugvélum sem fyrirtækið framleiðir. Af þeim sökum hefur bandaríska flugöryggisstofnunin takmarkað afköstin í verksmiðjum Boeing við 38 Max þotur í mánuði. Þar með þurfa flugfélög …