Samfélagsmiðlar

Standa með „lífvænlegum viðskiptavinum í ferðaþjónustu“

Spá Isavia um fjölda ferðamanna hér á landi í ár er mun svartsýnni en spár greiningadeilda bankanna.

Meirihluti lána Íslandsbanka til ferðaþjónustunnar er til fyrirtækja sem eru aðeins rekstrarhæf ef fjöldi túrista í ár verður nærri tvöfalt hærri en spár Isavia gera ráð fyrir.

Í síðasta ársuppgjöri bankans voru lán til ferðaþjónustufyrirtækja, þar með talið flugfélaga, flokkuð eftir þolgæði viðskiptavina. Og af þeim 94 milljörðum króna sem bankinn átti útistandandi hjá ferðaþjónustufyrirtækjum, í lok síðasta árs, þá var 61 milljarður kr. hjá fyrirtækjum sem aðeins eru rekstrarhæf ef spá bankans um sjö hundruð þúsund ferðamenn í ár gengur eftir.

Stjórnendur Isavia gera hins vegar aðeins ráð fyrir 400 þúsund ferðamönnum í ár samkvæmt nýrri spá en síðustu ár hefur Isavia verið mun nær því að segja rétt til um um fjölda túrista en greiningardeildir bankanna. Starfsmenn Isavia sitja líka einir að upplýsingum um áform flugfélaga og skiptingu farþega.

Nýtt mat á lánasafninu væntanlegt

„Íslandsbanki mun eftir sem áður standa með lífvænlegum viðskiptavinum sínum í ferðaþjónustu,“ segir Björn Berg Gunnarsson, deildarstjóri hjá Íslandsbanka, spurður hvort gripið hafi verið til aðgerða til að styðja enn frekar við fyrirtæki sem ekki verða rekstrarhæf ef spá Isavia gengur eftir.

„Við erum bjartsýn á framtíð greinarinnar og heilt yfir tilbúin að styðja við hana þó svo að aukning á fjölda ferðamanna verði minni til að byrja með heldur en spár gera ráð fyrir,“ bætir Björn Berg við.

Hann segir að uppfært mat á lánasafni Íslandsbanka verði birt með uppgjöri annars ársfjórðungs.

Nýtt efni

Frumvarp um að veita þúsundum óskráðra innflytjenda á Spáni heimild til landvistar og atvinnu er nú til meðferðar í fulltrúadeild spænska þingsins (Congreso de los Diputados) eftir að 700 þúsund manns höfðu undirritað áskorun um setningu laga þessa efnis. Nærri 900 samtök studdu þessa áskorun um að breyta stöðu óskráðra útlendinga í landinu.  Ef fyrirliggjandi …

Farþegar á leið til New York frá Róm, París, Ósló, London, Berlín eða Aþenu geta flogið beint með norska lágfargjaldaflugfélaginu Norse Atlantic. Í mörgum tilfellum er félagið með ódýrustu sætin á þessum leiðum og keppir því við íslensku flugfélögin um þá farþega sem vilja komast á milli fyrir sem minnst og setja það ekki fyrir …

„Tilgangurinn er að sýna hvað höfuðborgarsvæðið hefur að bjóða í ferðaþjónustu og byggja upp þekkingu meðal þeirra sem í henni starfa," sagði Inga Hlín Pálsdóttir, framkvæmdastjóri Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins, þegar FF7 hitt hana skömmu eftir að sýningin HITTUMST var opnuð í Hafnarhúsinu í dag. Nokkur hópur var þegar kominn að skoða það sem í boði er …

Hilton-hótelkeðjan hefur gert samning um byggingu og rekstur tveggja hótela hér á landi í samstarfi við Bohemian Hotels ehf. Stefnt er að því að opna það fyrra við Hafnarstræti á Akureyri næsta sumar en þar verða 70 herbergi og mun hótelið bera heitið Skáld Hótel Akureyri. Seinna hótelið opnar við Bríetartún, við hlið Frímúrarahallarinnar í …

Flugfélagið Play hefur hafið miðasölu á flugi til Cardiff í Wales og er þetta gert vegna mikils áhuga á leikjum íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu gegn Wales í Þjóðadeildinni sem fara fram næstkomandi haust.  Þetta kemur fram í tilkynningu. Íslenska liðið mætir liði Wales á Laugardalsvelli 11. október en liðin mætast aftur á heimavelli Wales í Cardiff …

Í þeirri viðleitni að hemja troðningstúrisma hafa borgaryfirvöld í Amsterdam ákveðið að leyfa ekki byggingu fleiri hótela í miðborginni. Þrátt fyrir að kröfur hafi verið hertar í borginni gagnvart nýbyggingum hótela þá eru yfir 20 hótel nú á teikniborðinu, segir NL Times. Takmörkunin nær auðvitað ekki til þeirra hótela sem þegar hafa verið samþykkt. Túristar …

Como-vatn á Langbarðalandi dregur til sín um 1,4 milljónir ferðamanna á ári - og í glæsihúsum við vatnið hefur margt frægt og ríkt fólk athvarf. Meðal þeirra sem eiga hús þarna eru George Clooney, Donnatella Versace og Richard Branson. Kannski er það ekki síst efnaða fólkið sem orðið er þreytt á átroðningi - að venjulegir …

Allt frá því að Play var skráð á hlutabréfamarkað sumarið 2021 og fram til ársloka 2022 var Fiskisund ehf. stærsti hluthafinn í Play með 8,6 prósenta hlut. Fyrir Fiskisundi fóru þau Kári Þór Guðjónsson, Halla Sigrún Hjartardóttir og Einar Örn Ólafsson, sem lengi var stjórnarformaður flugfélagsins en settist í forstjórastólinn um síðustu mánaðamót. Einar Örn átti einnig …