Í maí í fyrra lágu samgöngur milli landa nær algjörlega niðri vegna útbreiðslu Covid-19. Af þeim sökum var flugumferðin í nýliðnum maí miklu meiri en hún var í maí í fyrra.
Það er þó ennþá langt í land þegar horft er til fjölda farþega í maí árið 2019 eins og sjá má á töflunni hér fyrir neðan.
Samdrátturinn er alls staðar mjög mikill en líkt og áður þá hífir innanlandsflugið upp farþegafjöldann á öllum flugvöllum nema Keflavíkurflugvelli.