Icelandair mun ná þeim áfanga í þessari viku að vera með yfir eitt hundrað brottfarir frá Keflavíkurflugvelli. Svo margar hafa þær ekki verið síðan um miðjan mars í fyrra þegar Covid-19 faraldurinn var að hefjast.
„Það felast ákveðin tímamót í því að fljúga yfir 100 flug til áfangastaða Icelandair í einni viku eftir 15 mánaða baráttu við heimsfaraldur. Samhliða bólusetningum og auknu svigrúmi til ferðalaga hefur ferðavilji í heiminum aukist og við finnum fyrir aukinni eftirspurn almennings. Rétt eins og okkur tókst að draga hratt saman seglin við upphaf faraldursins höfum við lagt áherslu á að viðhalda sveigjanleika Icelandair til að mæta þeirri eftirspurn og auka starfsemi okkar hratt og örugglega þegar aðstæður gefa tilefni til. Með því tryggjum við öruggar samgöngur til og frá landinu þannig að ferðamenn komist hingað til lands og Íslendingar til útlanda,“ Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, í tilkynningu.
Í síðustu viku hóf Icelandair flug til Billund og Genf í Evrópu á nýjan leik og til Minneapolis í Bandaríkjunum. Í þessari viku bætist við áætlunar til Helsinki. Þar með flýgur Icelandair nú til 23 áfangastaða, fimmtán í Evrópu og átta í Norður-Ameríku.