Í stað þess að endurgreiða allar þær ferðir sem felldar voru niður vegna ástandsins sem Covid-19 olli þá gripu flugfélög til þess að bjóða farþegunum inneignarnótur.
Útgáfa Icelandair á þess háttar inneignum nam 12,1 milljarði króna í lok síðasta árs eða 94 milljónum dollara. Sú skuldbinding fór niður í 11,2 milljarða króna (89 milljónir dollara) á fyrri helmingi þessa árs samkvæmt uppgjöri félagsins sem birt var í gær.
Skýringin á því að upphæðin hefur ekki lækkað meira liggur meðal annars í því að ennþá eru bókunarskilmálar sveigjanlegir. Þar með er Icelandair enn að gefa út inneignarnótur að sögn Ívars S. Kristinssonar, starfandi fjármálastjóra Icelandair.
Hann bætti því við, í svari við fyrirspurn Túrista, að samtals hafi notkun á inneignarnótum, á öðrum ársfjórðungi, numið 7 milljónum dollara. Það jafngildir um 850 milljónum króna miðað við meðalgengi krónunnar á fyrri helmingi ársins.