Þrátt fyrir mikla fjölgun Covid-19 tilfella og nýjar sóttvarnaraðgerðir þá horfa ennþá margir útlendingar til Íslands sem áfangastaðar. Í það minnsta er það reynsla íslensku flugfélaganna.
„Eftirspurn eftir ferðum til Íslands er góð en við höfum tekið eftir minnkun á eftirspurn hjá Íslendingum á leið út,“ segir Guðni Sigurðsson, upplýsingafulltrúi Icelandair, um stöðu mála. En flugfélagið hefur staðið undir um helmingi ferða til og frá Keflavíkurflugvelli nú í sumar.
Umsvif Play eru ennþá lítil í samanburði við Icelandair enda félagið ennþá með með tvær þotur en sú þriðja er væntanleg.
Birgir Jónsson, forstjóri Play, segir fólk vera að kaupa miða í báðar áttir og eftirspurnin frá ferðamönnum mun meiri en gert hafi verið ráð fyrir.
„Við finnum að fólk ætlar að ferðast en það vilja allir fara eftir reglum og passa sig. Við vorum auðvitað undirbúin því að Covid bylgja gæti skollið á aftur og það er ástæða þess að við völdum að fara hægt af stað með okkar starfsemi. Núna myndi ég því segja að okkar styrkleiki væri að koma fram sem er sveigjanleiki því okkar rekstraráætlanir gera ekki ráð fyrir hámarks sætanýtingu fyrstu mánuðina,“ útskýrir Birgir.
Hann bætir því við að ef ástandið skyldi versna mun meira og Play neyðist til að draga seglin aðeins saman þá yrði að auðvelt þar sem félagið greiðir aðeins leigu af flugvélum miðað við hvern floginn tíma.
„[Þ]ví gætum við minnkað kostnaðinn okkar mjög hratt. En ég legg áherslu á að ástandið núna gefur ekki ástæðu til þess,“ segir forstjóri Play.