Í tengslum við fjárhagslega endurskipulagningu Icelandair síðastliðið sumar þá féll félagið frá kaupum á fjórum Boeing MAX þotum. Áður hafði Icelandair skuldbundið sig til að kaupa sextán þess háttar flugvélar en fjöldinn fór þá niður í tólf.
Nú eru stjórnendur Icelandair hins vegar að skoða kaup á tveimur MAX þotum samkvæmt því sem fram kom í máli Boga Nils Bogasonar, forstjóra Icelandair Group, á fundi með fjárfestum nú í morgunsárið.
Bogi bætti því við að fyrir árslok ætti að liggja fyrir hvers konar flugvélar muni leysa af hólmi Boeing 757 þoturnar sem hafa verið uppistaðan í flugflota Icelandair síðustu áratugi.