Það eru sex norræn flugfélag skráð á hlutabréfamarkað og gengi tveggja þeirra fór upp á við í vikunni.
Hjá Play nam hækkunin um sex af hundraði og virði Finnair fór upp um 2,4 prósent. Gengi Icelandair og hins nýstofnaða Flyr hélst óbreytt þegar horft er þróunarinnar frá opnun markaða á mánudaginn og til lokunar í gær.
Gengi bréfa í Norwegian og SAS fór aftur á móti niður á við eins og sjá má á súluritinu hér fyrir neðan.