Hér á landi ríkir leynd um fjölda farþega eftir flugleiðum en þess háttar gögn eru opinber víðast hvar annars staðar.
Það á til að mynda við um Bretland en þar birta flugmálayfirvöld reglulega upplýsingar um flugumferð frá öllum flugvöllum landsins. Og samkvæmt nýjum tölum fyrir maí sl. þá voru farþegarnir í flugi milli Íslands og Bretlands í maí samtals 1.831.
Í þeim mánuði var Icelandair eitt um ferðinar til Bretlands og flaug í öllum tilvikum til Heathrow við London. Samtals ellefu ferðir. Í sjö þeirra voru Boeing 767 nýttar þó fjöldi farþega hafi ekki kallað á svo stórar flugvélar. Aftur á móti hefur félagið notað þessar breiðþotur í áætlunarflugi sínu til að auka afköst í fraktflugi.
Að jafnaði voru 36 af hverjum eitt hundrað sætum skipuð farþegum í Lundúnarflugi Icelandair í maí samkvæmt útreikningum Túrista. Ef félagið hefði notað 160 sæta MAX 8 þotur sínar í ferðirnar þá hefði rétt um 52 prósent sætanna verið nýtt í fluginu.
Hér fyrir neðan má svo sjá hverstu margir flugu milli Bretlands og Norðurlandanna fimm í maí.