Nú hafa Tablet Hotels og Michelin snúið bökum saman þannig að kröfuharðir ferðamenn geti fundið bæði sérvalin hótel og veitingastaði í ferðavísum Michelin.
Eins og gefur að skilja er mikið af hótelunum hjá Tablet í dýrari kantinum en þar er þó líka að finna gott úrval af gistingu í milliverðflokki.
Einn helsti kostur Tablet er sá að þar eru aðeins fá hótel á hverjum áfangastað og því þarf ekki að fara í gegnum endalausa lista líkt og raunin er hjá stóru bókunarsíðununum.