Ásókn Ísraela í Íslandsferðir hefur verið umtalsverð í sumar og þannig fjölgaði gistinóttum þeirra á hótelum hér á landi í júní frá því sem var í hittifyrra.
Um miðjan júlí hófu svo tvö ísraelsk flugfélög að fljúga hingað til lands fyrir þarlendar ferðaskrifstofur. Í báðum tilvikum er um að ræða leiguflug fyrir ísraelskar ferðaskrifstofur og á dagskrá voru samtals tíu ferðir.
Ísland var hins vegar eitt þeirra ríkja sem bættist við rauðan lista ísraelskra sóttvarnaryfirvalda nú í byrjun ágúst. Þar með verða allir þeir sem koma til Ísrael eftir Íslandsdvöl að fara í sjö daga sóttkví. Það á líka við um þá bólusettu.
Þessar hertu aðgerðir hafa þó engin áhrif á leiguflug ísraelska flugfélagsins El-Al. Blaðafulltrúi flugfélagsins segir í svari til Túrista að engum brottförum hafi verið breytt.
El-Al notar minni gerðina af Boeing Dreamliner þotum í flugið til Íslands en þær taka 238 farþega.