Samfélagsmiðlar

Boeing Max á öllum flugleiðum

Í lok síðasta vetrar tók Icelandair Boeing Max þoturnar í gangið á ný eftir tveggja ára kyrrsetningu. Síðan þá hafa þæt verið nýttar í flug til allra áfangastaða félagsins nema tveggja. Á því verður nú breyting.

Af þeim borgum sem Icelandair flýgur til í dag þá tekur lengstan tíma að fljúga til Portland og Denver. Flugfélagið sjálft reiknar með átta tímum í ferðalagið til borganna tveggja á meðan flugferðin til Seattle og Orlando er að jafnaði 10 til 15 mínútum styttri.

Að undanförnu hefur Icelandair nýtt Boeing Max þotur í flug til bæði Seattle og Orlando og samkvæmt bókunarvef Icelandair stendur til að ferja farþega félagsins í fyrsta sinn til Portland og Denver í Max þotum nú í október.

Ásdís Pétursdóttir, upplýsingafulltrúi Icelandair, staðfestir að stefnt sé að því að nota þoturnar á þessum löngu flugleiðum nú í haust. En borgirnar tvær eru þær einu í leiðakerfi Icelandair sem Max þoturnar hafa ennþá ekki flogið til.

Ásdís bendir á að flugvélarnar hafi verið að koma betur út hvað varðar drægni og eldsneytisnýtingu en upphaflega var áætllað. Flugleiðin til Portland er um sex þúsund kílómetrar og drægni þotannna er 6.600 kílómetrar samkvæmt heimasíðu Boeing. Þar miðar flugvélaframleiðandinn reyndar við fleiri farþega en pláss er fyrir í Max 8 og Max 9 þotum Icelandair. samkvæmt heimasíðu Boeing

Í Boeing 757-200 þotunum sem Icelandair flýgur vanalega til Denver og Portland eru sæti fyrir 183 farþega. Max 8 flugvélar félagsins taka 160 farþega og í Max 9 gerðinni eru sæti fyrir 178 farþega.

Framboðið dregst því aðeins saman og segir Ásdís að árstíðarsveifla í eftirspurn sé líka ein af ástæðum þess að nýju þoturnar verða notaðar í flugi til Denver og Portland.

Nýtt efni

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …

Play tapaði 3,1 milljarði króna fyrir skatt á fyrsta ársfjórðungi í fyrra en núna var tapið 19 prósent hærra eða 3,7 milljarðar króna. Félagið jók framboðið um 63 prósent á milli þessara tveggja fjórðunga en í flota félagsins voru sex til átta þotur í byrjun síðasta árs en núna eru þær tíu. Einar Örn Ólafsson, …

Sjóðir bandaríska flugvélaframleiðandans Boeing minnkuðu um 3,9 milljarða dollara á fyrsta ársfjórðungi. Upphæðin jafngildir 550 billjónum íslenskra króna og skýringin á þessum mikla fjármagnsbruna liggur í endurteknum göllum í þeim flugvélum sem fyrirtækið framleiðir. Af þeim sökum hefur bandaríska flugöryggisstofnunin takmarkað afköstin í verksmiðjum Boeing við 38 Max þotur í mánuði. Þar með þurfa flugfélög …