Tólf flugmenn hafa verið endurráðnir til Icelandair og eru þeir að hefja störf á ný fyrir félagið þessa dagana. Með þessari viðbót þá verða í heildina 268 flugmenn sem sinna millilandaflugi Icelandair samkvæmt upplýsingum frá flugfélaginu.
Til samanburðar þá eru 460 flugfreyjur og -þjónar hjá Icelandair í dag og nú er unnið að fastráðningum í þau störf fyrir vetrarvertíðina sem hefst formlega í lok október. Ekki stendur til að fjölga flugreyjum og -þjónum hjá félaginu að svo stöddu.
Líkt og Túristi greindi frá fyrir helgi þá er horft til þess að flugmenn félagsins verði um fjögur hundruð talsins næsta sumar. Áætlun næsta sumars gerir líka ráð fyrir töluvert meiri umsvifum en nú er og til að mynda verður boðið upp brottfarir til Evrópu og Norður-Ameríku utan háannatíma.