Það er margt ólíkt með upphafsskrefum Play og Iceland Express. Því fyrrnefnda tókst að selja hlutafé fyrir um tíu milljarða króna fyrir fyrstu flugferðina á meðan forsvarsmenn Iceland Express urðu að gefa út víxil upp á 22 milljónir kr. til að tryggja sér þotu stuttu fyrir jómfrúarferðina í lok febrúar árið 2003.
Kaupandi víxilsins fékk veð í öllu hlutafé Iceland Express en sá var á þessum tíma stór hluthafi í Icelandair.
Hver þessi bjargvættur Iceland Express var má lesa í nýju Innleggi hér á síðum Túrista. Þar ber Ólafur Hauksson, einn stofnanda Iceland Express, saman upphaf þess félags og svo Play sem hóf áætlunarflug nú í sumar.
– Ert þú með innlegg í umræðuna um ferðaþjónustuna? Sendu þá línu á turisti(hjá)ff7.is.