Samfélagsmiðlar

Lætur gott heita eftir 15 ár hjá Icelandair

Jens Þórðarson er að hætta hjá Icelandair.

Jens Þórðarson, sem gegnt hefur stöðu framkvæmdastjóra rekstrarsviðs hjá Icelandair Group, hefur óskað eftir að láta af störfum hjá félaginu. Hann er annar framkvæmdastjórinn sem hættir hjá félaginu í ár því Eva Sóley Guðbjörnsdóttir, þáverandi fjármálastjóri samsteypunnar, óskaði eftir starfslokum í sumarbyrjun.

Jens hóf störf hjá Icelandair árið 2006 og starfaði fyrstu árin meðal annars sem forstöðumaður fjármála og rekstrar á tæknisviði Icelandair og sem forstöðumaður varahluta- og innkaupadeildar. Hann tók við starfi framkvæmdastjóra rekstrarsviðs í janúar 2018 eftir að hafa starfað sem framkvæmdastjóri tæknisviðs Icelandair frá árinu 2011.

„Ég er afar þakklátur og stoltur af þeim 15 árum sem ég hef notið þess tækifæris að vinna fyrir Icelandair Group í fjölbreyttum verkefnum með frábærum samstarfsfélögum. Eftir árangursríkan feril hingað til hef ég ákveðið að skipta um stefnu og leita á önnur mið. Icelandair Group er sigurlið á heimsvísu og jafnvel þó ég kveðji fyrirtækið á þessari stundu mun ég fylgjast spenntur með því vaxa og dafna á komandi árum,“ skrifar Jens í fréttatilkynningu.

Nýtt efni

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …

Play tapaði 3,1 milljarði króna fyrir skatt á fyrsta ársfjórðungi í fyrra en núna var tapið 19 prósent hærra eða 3,7 milljarðar króna. Félagið jók framboðið um 63 prósent á milli þessara tveggja fjórðunga en í flota félagsins voru sex til átta þotur í byrjun síðasta árs en núna eru þær tíu. Einar Örn Ólafsson, …

Sjóðir bandaríska flugvélaframleiðandans Boeing minnkuðu um 3,9 milljarða dollara á fyrsta ársfjórðungi. Upphæðin jafngildir 550 billjónum íslenskra króna og skýringin á þessum mikla fjármagnsbruna liggur í endurteknum göllum í þeim flugvélum sem fyrirtækið framleiðir. Af þeim sökum hefur bandaríska flugöryggisstofnunin takmarkað afköstin í verksmiðjum Boeing við 38 Max þotur í mánuði. Þar með þurfa flugfélög …

Fyrr á þessu ári kynnti fyrirtækið til sögunnar Precious Honeyglow anansinn sem er aðeins um 600 1000 grömm að þyngd eða um það bil helmingi minni en hefðbundinn ananas.Í fréttatilkynningu frá fyrirtækinu segir að það kappkosti ávallt að uppfylla óskir kaupenda, hvort sem þær eru um sætara bragð, sjálfbærnisjónarmið og nú – stærð. Hið nýja …

Tekjur Icelandair af farþegaflugi námu rúmlega 27 milljörðum króna á fyrsta fjórðungi ársins og hafa þeir aldrei verið hærri á þessum tíma árs. Sætaframboðið hefur heldur aldrei verið meira en það jókst það um 21 prósent á milli ára og var farþegahópurinn 14 prósent fjölmennari núna en fyrstu þrjá mánuðina í fyrra. Þá stóðu farþegar …