Það kom tímabil síðasta vetur sem Lufthansa var eina flugfélagið sem flaug milli Íslands og Þýskalands. Þá bauð félagið upp á tvær ferðir í viku frá Frankfurt og nýtti minnstu Airbus þotur sínar í flugið. Nú í sumar voru stærri þotur sendar til Íslands og við bættist áætlunarflug frá Munchen.
Í nýliðnum ágúst stóð Lufthansa fyrir samtals fjörutíu áætlunarferðum hingað samkvæmt talningu Túrista og segir talsmaður félagsins að Íslandsflug sumarsins hafi verið nokkuð vel heppnað. Félagið ætlar svo að halda ferðunum frá Frankfurt áfram í vetur og verða brottfarirnar þrjár í viku.
Til samanburðar ætlar Icelandair að fljúga þotum sínum til Frankfurt alla daga vikunnar nema á miðvikudögum.
Auk þess geta þeir sem vilja fljúga beint milli Íslands og Þýskalands nýtt sér ferðir Icelandair frá Munchen og svo bjóða bæði íslensku flugfélögin upp á flug til Berlínar.