Það kostar töluvert meira að reka Icelandair í dag en lagt var upp með í hlutafjárútboði félagsins sl. haust. Það vegur hins vegar upp á móti hækkuninni að fargjöld félagsins eru hærri í dag en þau voru þegar samkeppnin við Wow Air og Norwegian var hörðust.
Því samkvæmt útreikningum Túrista þá voru tekjur félagsins á hvern seldan kílómetra (Yield) um 12 prósent hærri á þriðja fjórðungi ársins í samanburði við sama tímabil árið 2018. Í samanburði við þriðja ársfjórðung 2019 nemur hækkunin nærri tíund en það var í lok mars það ár sem Wow Air varð gjaldþrota. Mikil umsvif Norwegian í flugi til Bandaríkjanna settu líka pressu á fargjöldin hjá Icelandair fram að heimsfaraldri. Norska félagið er hins vegar horfið af bandaríska markaðnum og þar með getur Icelandair rukkað meira.
Þarna spilar líka inn í að núna eru tengifarþegar fáir en þeir borga alla jafna minna á hvern floginn kílómetra en þeir sem fljúga bara til og frá Íslandi.
Þess ber að geta að forráðamenn Icelandair vilja ekki gefa upplýsingar um þróun tekna á hvert selt sæti þó þess háttar upplýsingjagjöf þyki víða sjálfsögð. Í svari Icelandair, við fyrirspurn Túrista, segir aðeins að ánægja sé með tekjumyndunina á þriðja ársfjórðungi.
Icelandair gefur þó upp hvernig tekjur á hvern floginn kílómetra hafa þróast. En núna þegar óseldu sætin eru miklu fleiri en þau voru fyrir heimsfaraldur þá hafa tekjurnar lækkað á hvern floginn kílómetra eins og sjá má hér fyrir neðan.
Þegar horft er til einingakostnaðar þá hækkaði hann um tíund á þriðja fjórðungi ársins í samanburði við sama tíma árið 2019. Það sem af er ári er hann þrjátíu prósent hærri en fyrstu níu mánuðina árið 2019 eða 9,5 bandarísk cent. Markmiðið var að ná honum niður í 8 cent samkvæmt því sem fjárfestum var kynnt sl. haust.
Skýringin á því liggur meðal annars í hækkun á olíuverði samkvæmt svari frá Icelandair en í kynningu á uppgjöri félagsins í gær kom fram eldsneytisverðið hafi verið um 41 prósent hærra á þriðja ársfjórðungi en það var á sama tíma í fyrra.