Icelandair gekk í gær frá sölu á tveimur af þeim þremur Max þotum sem von er á um áramótin. Þegar félagið festi kaup á sextán þess háttar flugvélum fyrir átta árum síðan þá var stefnan að meirihluti þeirra yrði í eigu flugfélagsins.
Ekkert varð af þeim áformum því strax árið 2017 seldi fyrirtækið fyrstu fjórar þoturnar til kínverskrar flugvélaleigu sem leigði Icelandair þoturnar tilbaka til níu ára. Þoturnar voru teknar í notkun snemma árs 2019.
Segja má að þessi viðskipti hafi markað ákveðin þáttaskil í rekstri Icelandair. Þannig hafa allar gömlu Boeing 757 þoturnar í flota félagins verið í eigu fyrirtækisins og átján þess háttar flugvélar eru í dag skráðar á Icelandair og þrjár Boeing 767 breiðþotur.
Vilja leigja tvær í viðbót
Aftur á móti á félagið bara þrjár Max þotur eftir viðskipti gærdagsins. Fjármögnunarfyrirtæki hafa í heildina keypt níu af þeim tólf þotum sem verða í flota flugfélagsins frá og með byrjun næsta árs.
Sem fyrr segir þá gerði upphaflegi samningurinn við Boeing ráð fyrir að Icelandair myndi kaupa sextán eintök af Max þotum. Í tengslum við fjárhagslega endurskipulagningu félagsins síðastliðið haust þá náðist samkomulag við bandaríska flugvélaframleiðandann um að afbóka fjögur eintök.
Núna horfa reyndar stjórnendur Icelandair til þess að leigja tvær Max þotur í viðbót enda hefur reynslan sýnt að drægni þotanna er meiri en reiknað var með þegar kaupin voru innsigluð fyrir átta árum síðan.
Algengt fyrirkomulag
Icelandair er ekki eina flugfélagið sem hefur farið þá leið að fjármagna reksturinn með því að selja og endurleigja flugvélar. Það gerði Wow Air til að mynda alla tíð og fjöldi stórra flugfélaga stundar þess háttar viðskipti. Nú í vikunni seldi til Finnair fjórar af Airbus A350 breiðþotum sínum en leigði þær svo tilbaka. Um helmingur þeirra þota sem SAS hefur í flota sínum eru í eigu flugvélaleiga en þess háttar fyrirtæki eru orðin álíka umsvifamikil í kaupum á flugvélum og flugfélögin sjálf. Viðskiptamódel Play gengur einmitt út á að félagið leigi flugvélar í stað þess að kaupa.