Það eru sárafáir erlendir ferðamenn sem nýta sér flugsamgöngurnar héðan til Alicante og Tenerife og til marks um það þá er ekki hægt að bóka sæti í ferðir Icelandair til Alicante á heimasíðu flugfélagsins. Þess í staði sér Vita, systurfélag Icelandair, um að selja sætin og þá eingöngu til Íslendinga.
Og í nýliðnum september seldust sæti fyrir 2518 farþega í þessar flugferðir Icelandair og Vita, til og frá Alicante, samkvæmt tölum frá spænskum flugmálayfirvöldum.
Play seldi 2441 sæti í sínar áætlunarferðir til Alicante og 1282 keyptu miða í flug til spænsku borgarinnar á vegum Heimsferða og Ferðaskrifstofu Íslands.
Flugfélögin tvö fluttu því samanlagt átta af hverjum tíu farþegum til Alicante í september og sitja því á langstærsta hluta markaðarins. Það er líka raunin er fyrir flug til Tenerife eins Túristi fjallaði um í gær.
Eins og sjá má hér fyrir neðan þá var hlutdeild flugfélaganna tveggja aðeins lægri í ágúst en hærri í júlí en það var þá sem Play hóf reglulegt flug til Alicante og Tenerife.