Þotur lágfargjaldaflugfélaga eru vanalega þéttsetnari en flugvélar hefðbundinna félaga. Þessi munur endurspeglast í farþegatölum fjögurra stærstu flugfélaga Norðurlanda fyrir síðasta mánuð. Sætanýtingin er nefnilega langhæst hjá Norwegian. Í samanburði við september 2019 er Icelandair komið lengst í batanum.
Farþegahópuirnn hjá íslenska félaginu var nefnilega nærri helmingur af því sem var á sama tíma í hittifyrra. Það er mun lengra í land hjá Finnair enda byggir starfsemi þess félags að miklu leyti á flugi til Austurlanda fjær. Ennþá eru flugsamgöngur milli Evrópu og Asíu hins vegar mjög takmarkaðar og farþegahópur finnska félagsins rétt um fjórðungur af því sem var.
Niðursveiflan hjá Norwegian var líka mjög mikil í september en hafa verður í huga að þar á bæ er ekki lengur horft til þess að ná fyrri stærð. Umsvifin eiga að vera mun minni en áður og þannig hefur félagið lagt niður allt flug til Norður-Ameríku.