Samfélagsmiðlar

Sextugasta flugslysaæfingin á síðastliðnum aldarfjórðung

Frá flugslysaæfingunni í gær.

Á fimmta hundraðmanns tóku þátt í umfangsmikilli flugslysaæfingu sem haldin var á Keflavíkurflugvelli í gær. Æfingar á flugvellinum eru stærstu hópslysaæfingar sem haldnar eru á Íslandi. Æfingar af þessu tagi eru afar mikilvægar fyrir heildarviðbragðskerfi Íslands hvort sem um er að ræða flugslys eða önnur hópslys að því segir í tilkynningu.

Stór flugslysaæfing er haldin á þriggja til fjögurra ára fresti á hverjum flugvelli á Íslandi þar sem boðið er upp á áætlunarflug. Æfingar eru tvær til fjórar á ári hverju. Isavia hefur staðið fyrir  um sextíu flugslysaæfingum frá árinu 1996. Undirbúningur fyrir æfingar sem þessa hefst um þremur mánuðum áður en til hennar kemur og er hún unnin í nánu samstarfi við viðbragðsaðila á hverjum stað. Þar á meðal eru starfsmenn flugvallarins, lögregla, slökkvilið, sjúkraflutningsaðilar, starfsfólk sjúkrahúsa, almannavarnir, björgunarsveitir, Rauði krossinn, rannsakendur, flugrekendur og flugafgreiðsluaðilar. 

Þátttakendur á æfingunni voru á fimmta hundrað í dag, þar af um 150 sjálfboðaliðar sem léku slasaða og aðstandendur. Sett var á svið flugslys þar sem þota brotlenti á flugbraut og endar vestan við hana. Kveikt var í bílflökum sem ætlað var að líkja eftir flugvélabúk til að gera vettvanginn sem raunverulegastan. Sjálfboðaliðar í hlutverki slasaðra voru farðaðir og allt gert til að líkja sem mest eftir raunverulegu slysi. 

„Æfingin gekk afar vel og nú hefst vinna við að rýna viðbrögðin,“ segir Elva Tryggvadóttir, verkefnastjóri neyðarviðbúnaðar hjá Isavia og æfingastjóri. „Það verður farið ítarlega yfir þau atriði sem gengu vel á þessari æfingu og einnig það sem betur mætti fara.“ 

„Æfingarnar eru gríðarlega mikilvægar fyrir okkur hjá Isavia en einnig fyrir viðbragðskerfið í nærsamfélagi við flugvellina,“ segir Friðfinnur Freyr Guðmundsson, verkefnastjóri neyðarviðbúnaðar hjá Isavia og fulltrúi í æfingastjórn. „Það var einstaklega gaman að sjá hvað allt gekk vel hér í dag og hversu mjög allir viðbragðsaðilar eru viðbúnir ef vá ber að höndum.“ 

„Við viljum þakka öllum þeim fjölmörgu aðilum sem komu að æfingunni fyrir afskaplega gott samstarf,“ segir Elva. 

Nýtt efni

Áður en skemmtiferðaskipin taka að fylla götur Ísafjarðar af forvitnum ferðalöngum eru tvær helgar að vori sem fylla bæinn af heldur ólíkum hópum fólks. Sú fyrri er páskahelgin þegar tónlistarfólk og áhangendur þeirra þyrpast í bæinn til að taka þátt í rokkhátíð alþýðunnar, Aldrei fór ég suður, og sú síðari er Fossavatnshelgin, sem fór fram …

Tekjur Finnair drógust saman um tvö prósent á fyrsta fjórðungi ársins þrátt fyrir að finnska flugfélagið hafi aukið framboðið. Skýringin á samdrættinum liggur í verkföllum, verri sætanýtingu og lægri tekjum af fraktflutningum samkvæmt uppgjöri félagsins sem birt var í morgun. Rekstrarkostnaður Finnair á fyrsta ársfjórðungi var á pari við sama tímabil í fyrra og tapaði …

Allt þar til að Boeing Max krísan hófst, í ársbyrjun 2019, framleiddi Boeing fleiri þotur en keppinauturinn, Airbus. Kyrrsetningar og endurteknir framleiðslugallar hafa hins vegar orðið til þess að hægt hefur á framleiðslunni í verksmiðlum Boeing og eftirspurnin minnkað. Í fyrra framleiddi Airbus 735 þotur en Boeing 528 og mun bilið að öllu óbreyttu breikka …

Fataverslunin Húrra Reykjavík opnar í brottfararsal Keflavíkurflugvallar í vor og verður þar boðið upp á úrval af fatnaði og skóm frá vinsælum vörumerkjum fyrir farþega á leið úr landi. „Við erum að stíga stór skref með opnun þessarar nýju og glæsilegu verslunar, sem á sér stað í tilefni af 10 ára afmæli fyrirtækisins. Þetta er …

MYND: ÓJ

„Þetta er ein heitasta gjafavara Íslands, það get ég sagt fullum fetum. Seljum mikið á netinu hjá okkur út um allan heim,“ segir Baldur Ólafsson, markaðsstjóri Bónus, við fyrirspurn FF7 um vinsældir burðarpoka Bónus meðal ferðamanna.  Áberandi er við verslanir Bónus í miðborginni að ferðamenn kaupa þar gjarnan marga burðarpoka úr endurefni efni sem skarta …

Koffínlausar kaffibaunir eru hefðbundnar kaffibaunir þar sem beiskjuefnið og örvandi hlutinn koffín hefur verið fjarlægt. Útbreiddasta og ódýrasta ferlið við að losa baunirnar við koffínið er hins vegar orðið umdeilt þar sem efnasambönd sem við það eru notuð eru nú tengd við ýmsa heilsufarskvilla.Hægt er að beita nokkrum aðferðum við að losa kaffibaunir við koffín. …

Þrjátíu og átta trilljónir er tala sem er svolítið erfitt að skilja. Trilljón er notað í Bandaríkjunum yfir það sem við Íslendingar köllum billjón, og billjón er þúsund milljarðar, eða milljón milljónir. Á núverandi gengi eru 38 trilljónir Bandaríkjadala sama og 5.320 billjónir íslenskra króna, eða 5,3 milljón milljarðar.  Það er gott að hafa þetta …

Borgaryfirvöld í Lissabon hafa samþykkt að hækka gistináttagjald úr 2 í 4 evrur. Gjaldtaka nær ekki til tjaldstæða. Þá hefur komugjald á skipafarþega verið hækkað úr 1 í 2 evrur. Tillaga um að hækka það gjald í 4 evrur var felld.  Lusa-fréttastofan hefur eftir Carlos Moedas, borgarstjóra, að það sé „sanngjarnt fyrir borgina og íbúa …