Bandaríska flugfélagið United Airlines hefur nú í sumar flogið til Keflavíkurflugvallar frá bæði New York og Chicago. Þetta var í fyrsta sinn sem félagið hélt úti áætlunarferðum hingað frá þeirri síðarnefndu.
Nú verður gert hlé á ferðunum fram fram á næsta vor en talsmaður United staðfestir við Túrista að þá verði á ný í boðið upp Íslandsferðir frá báðum borgum og það daglega. Gert er ráð fyrir að fyrsta ferðin héðan til New York verði á dagskrá 7. maí og þremur vikum síðar hefst áætlunarflugið frá Chicago.
Ferðunum verður svo haldið út fram á haustið og sem fyrr er gert ráð fyrir að notaðar verði Boeing 757 þotur í Íslandsflugið. Í þeim er svokallað fyrsta farrými með sætum sem hægt er að breyta í bedda.