Gengi hlutabréfa í Play hækkaði um ríflega fjórðung í síðustu viku og þar með fór markaðsvirði félagsins upp rúmlega fjóra milljarða króna. Núna er félagið metið á 19 milljarða króna.
Og á nýbirtum lista yfir stærstu hluthafana má sjá eignarhlutföll nokkurra hafa breyst þónokkuð síðustu vikur.
Þannig er þrír sjóðir í vörslu verðbréfafyrirtækisins Akta skráðir fyrir samtals átta milljónum færri hlutum í dag en í byrjun september. Aftur á móti hefur hlutabréfasjóðurinn IS Equus, sem Íslandssjóðir reka, bætt við sig álíka mörgum hlutum.
Vátryggingafélag Íslands hefur líka keypt nærri þrjár milljónir hluta síðustu vikur og lífeyrissjóðurinn Lífsverk hefur bætt við tæplega tveimur milljónum. Virði hvers hlutar er í dag 27,2 krónur.
Alva Capital, í eigu Skorra Rafns Rafnssonar, fyrrum stjórnarformanns Netgíró, eru hins vegar ekki lengur á lista yfir 20 stærstu hluthafanna. Það félag var skráð fyrir 9,7 milljónum hluta í byrjun september en núna þarf um 8,5 milljónir hluta til að komast á topplistann.
Arion banki og Kvika banki eru einnig skráðir fyrir mun stærri eignarhlut í Play í dag en þeir voru í byrjun september. Þar eru líklegast að einhverju leyti bréf sem eru í eigu viðskiptavina bankanna tveggja.